CRM fyrir Business Central
Íslenskt CRM kerfi með fullri samþættingu við Microsoft Dynamics 365 Business Central: reikningar bókast í Business Central, staða samstillist sjálfkrafa og gögn eru sótt úr einu eða fleiri félögum.
Íslenskt CRM kerfi fyrir Business Central. Sölufólkið vinnur í einföldu CRM: viðskiptavinir, tilboð og reikningar. Bókhaldið er áfram í Microsoft Dynamics 365 Business Central, og kerfin tvö tala saman í báðar áttir.
Vandamálið
Business Central er frábært bókhaldskerfi, en þungt fyrir sölufólk
Sölumaðurinn þarf að vita hvað viðskiptavinurinn er með, hvað hann skuldar og hvaða tilboð eru úti. Hann þarf ekki bókunarflokka, fjárhagslykla og tíu flipa. Oft endar salan í Excel og tölvupósti, og reikningurinn er sleginn inn aftur í Business Central. Þá tvöfaldast vinnan og villurnar.
Samþættingin
Full samþætting við Business Central
Tenging með einum smelli
Stjórnandi hjá ykkur samþykkir tenginguna einu sinni í Microsoft. Engir lyklar eru afhentir og samþykkið má afturkalla hvenær sem er í Microsoft Entra.
Reikningar bókast í Business Central
Reikningur sem gefinn er út í CRM er stofnaður og bókaður í Business Central, með VSK-flokkum og tekjulyklum sem þú velur einu sinni. Númerið kemur úr Business Central.
PDF úr bókhaldinu
Reikningurinn sem viðskiptavinurinn fær er PDF-skjalið úr Business Central, svo það sem hann sér er nákvæmlega það sem er bókað.
Greitt eða ógreitt, sjálfkrafa
Ógreidd staða er sótt úr Business Central á 15 mínútna fresti. Sölufólkið sér strax hver skuldar, og afstemming sýnir að CRM og bókhaldið stemma.
Viðskiptavinir á báðum stöðum
Viðskiptavinur er fundinn í Business Central eftir númeri eða kennitölu, og stofnaður þar ef hann er ekki til. Kreditreikningar jafnast á upprunalega reikninginn.
Sagan fylgir með
Viðskiptavinir, vörur (Items) og eldri bókaðir reikningar eru sóttir úr Business Central með einum smelli, svo CRM sýnir alla söguna frá fyrsta degi.
Fleiri félög
Mörg félög í sama Business Central
Samstæður og fyrirtæki með fleiri en eitt félag í Business Central velja úr hvaða félagi gögnin eru sótt, eða úr fleiri en einu í einu. Hvert félag er sótt sér og samstillist áfram við rétt félag.
Sama reikningsnúmer má vera í fleiri en einu félagi án þess að ruglast, og viðskiptavinur sem er í fleiri félögum (sama kennitala) verður einn viðskiptavinur í CRM, með alla reikningana sína á einum stað.
Svona byrjar þú
Tengt við Business Central á einum degi
Þú færð CRM kerfið á eigin léni
Til dæmis crm.fyrirtaekid.is, með innskráningu í tveimur skrefum og eigin merki á tilboðum.
Stjórnandi samþykkir tenginguna
Einn smellur í CRM opnar samþykki í Microsoft. Forritið er svo virkjað í Business Central á síðunni Microsoft Entra Applications.
Veldu félag, VSK-flokka og tekjulykla
Félagið sem CRM bókar í, VSK-flokkur fyrir 24%, 11% og 0%, og tekjulykill eftir tegund línu.
Sæktu gögnin úr Business Central
Viðskiptavinir, vörur og eldri reikningar, úr einu félagi eða fleirum. Óhætt er að sækja aftur; ekkert tvöfaldast.
Líka í CRM kerfinu
Allt sem sölufólkið þarf
- Stjórnborð viðskiptavina: leit á kennitölu, nafni eða síma, og hver skuldar, hver er í rukkun og hver hefur ekki keypt lengi.
- Sölupípa, tækifæri og tilboð með rafrænu samþykki viðskiptavinar á netinu.
- Vörur og áskriftir á hverjum viðskiptavini, endurteknir reikningar og verðbreyting til allra í einu.
- Áskriftartekjur, uppsölutækifæri, innheimtuáminningar og tölvupóstur á hóp viðskiptavina.
- Mínar síður á ykkar léni: viðskiptavinir skrá sig inn með eigin kennitölu og lykilorði, sjá tilboð, reikninga og stöðu, og samþykkja tilboð.
- Fyrirspurnir úr sameiginlega pósthólfinu verða að erindum, sem þið svarið beint úr CRM; svar viðskiptavinarins kemur aftur í sama erindi.
- Tölvupóstur sölufólksins við viðskiptavini birtist á tímalínu þeirra, og nafn og heimilisfang koma úr fyrirtækjaskrá eftir kennitölu.
- Hvert fyrirtæki er aðskilið í gagnagrunninum, með aðgerðaskrá og sjálfvirku afriti.
Algengar spurningar
Spurt og svarað um CRM fyrir Business Central
Hvaða útgáfu af Business Central þarf?
Microsoft Dynamics 365 Business Central í skýinu (SaaS). Tengingin notar opin forritaskil Business Central (API v2.0) og þarf enga viðbót í Business Central.
Þurfum við að afhenda lykla eða lykilorð?
Nei. Stjórnandi hjá ykkur samþykkir tenginguna í Microsoft og virkjar hana í Business Central. Ef þið viljið frekar nota eigið forrit í Microsoft Entra er það líka hægt.
Getum við sótt gögn úr fleiri en einu félagi?
Já. Þú velur eitt eða fleiri félög í Business Central og sækir viðskiptavini, vörur og bókaða reikninga úr þeim öllum. Reikningar hvers félags samstillast áfram við það félag.
Er eitthvað sent til Business Central þegar gögn eru sótt?
Nei. Innflutningurinn les aðeins. Það eina sem CRM skrifar í Business Central eru reikningar og kreditreikningar sem þú gefur út í CRM, og viðskiptavinir sem vantar fyrir þá.
Hvað ef við notum Payday en ekki Business Central?
CRM kerfið er líka með fulla samþættingu við Payday. Sjá CRM kerfið.
Prófaðu CRM fyrir Business Central frítt í 14 daga
Þinn eigin aðgangur á einni mínútu, án greiðslukorts. Eða fáðu kynningu og við tengjum kerfið við ykkar Business Central með ykkur.
CRM kerfið er þróað og rekið af Vefhjálp á Íslandi. Microsoft, Dynamics 365 og Business Central eru vörumerki Microsoft.