CRM kerfi
Íslenskt CRM kerfi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki: viðskiptavinir, sölupípa, tilboð, reikningar og áskriftir, með fullri samþættingu við Payday og Business Central, Mínum síðum fyrir viðskiptavini og erindum úr tölvupósti.
Íslenskt CRM kerfi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Viðskiptavinir, sölupípa, tilboð, reikningar og áskriftir á einum stað, með fullri samþættingu við Payday og Microsoft Dynamics 365 Business Central. Reikningurinn verður til í CRM, er bókaður í bókhaldinu og greiðslan skilar sér sjálf til baka. Viðskiptavinirnir ykkar fá Mínar síður og fyrirspurnir úr pósthólfinu verða að erindum.
Vandamálið
Salan er í einu kerfi, reikningarnir í öðru og sagan í tölvupóstinum
Tilboð er skrifað í Word, reikningurinn sleginn inn aftur í bókhaldið og enginn veit hvort hann var greiddur nema sá sem opnar heimabankann. Þegar sölumaðurinn fer í frí veit enginn hvað var lofað hverjum, og viðskiptavinir sem hættu að kaupa detta út án þess að nokkur taki eftir því. Vandinn er ekki skortur á forritum, heldur að ekkert þeirra talar saman.
Eiginleikar
CRM kerfi sem heldur utan um alla söluna
Viðskiptavinir á einum stað
Stjórnborð þar sem þú flettir upp viðskiptavini á kennitölu, nafni eða síma og sérð strax hver skuldar, hver er í rukkun og hver hefur ekki keypt lengi.
Hvað hver viðskiptavinur er með
Skráðu vörur og þjónustu á hvern viðskiptavin, t.d. hýsingu, leyfi eða þjónustusamning, með verði og tímabili. Settu þær í rukkun með einum smelli.
Sölupípa og tækifæri
Tækifæri eftir stigum, vegið virði og eftirfylgni. Kerfið minnir á tækifæri sem hafa staðið kyrr og reikninga sem eru komnir fram yfir eindaga.
Tilboð með rafrænu samþykki
Tilboð úr verðskrá með merki fyrirtækisins. Viðskiptavinurinn opnar það í vafranum og samþykkir á netinu, og tilboðið verður að reikningi.
Reikningar og áskriftir
Reikningur beint úr samþykktu tilboði og endurteknir reikningar fyrir mánaðargjöld. Verðbreyting á vöru nær til allra viðskiptavina í einu.
Skýrslur og samskiptasaga
Sala eftir mánuðum, sölumönnum og viðskiptavinum, útistandandi eftir aldri, og öll símtöl, fundir og nótur á einni tímalínu.
Erindi úr pósthólfinu
Fyrirspurnir í sameiginlega pósthólfið (Microsoft 365 eða Google Workspace) verða að erindum, tengdum viðskiptavininum. Þú svarar beint úr CRM og svar viðskiptavinarins kemur aftur í sama erindi.
Tölvupóstur í samskiptasögunni
Tengdu þitt eigið pósthólf og bréf til og frá viðskiptavinum birtast sjálfkrafa á tímalínu þeirra, svo allir í teyminu sjá hvað var rætt.
Fyrirtækjaskrá
Sláðu inn kennitölu og nafn, heimilisfang og VSK-númer koma úr fyrirtækjaskrá. Uppfærðu alla viðskiptavinina í einu þegar eitthvað breytist.
Mínar síður
Mínar síður fyrir viðskiptavinina ykkar
Viðskiptavinir ykkar fá eigin Mínar síður á ykkar léni, til dæmis minarsidur.fyrirtaekid.is, með ykkar merki. Þar sjá þeir tilboð og samþykkja þau, reikninga og stöðu viðskiptanna, sækja PDF, sjá vörur og áskriftir og senda fyrirspurn sem verður að erindi hjá ykkur.
Hver einstaklingur skráir sig inn með eigin kennitölu og lykilorði og sér aðeins þá viðskiptavini sem þið tengið honum. Nýir geta sótt um aðgang á innskráningarsíðunni og þið samþykkið, eða þið stofnið aðganginn sjálf og viðkomandi fær tölvupóst til að velja lykilorð.
Payday
Full samþætting við Payday
Tengdu Payday einu sinni með lyklum úr stillingum Payday. Eftir það gefur þú reikninginn út í CRM og hann er stofnaður og bókaður í Payday með réttu reikningsnúmeri. Payday getur sent hann í tölvupósti, stofnað kröfu í netbanka greiðanda og sent rafrænan reikning.
Þegar viðskiptavinurinn greiðir, eða reikningur er ógiltur í Payday, uppfærist staðan í CRM sjálfkrafa. Afstemming sýnir svart á hvítu að CRM og Payday stemma, reikning fyrir reikning.
Ertu búinn að nota Payday lengi? Með einum smelli sækir CRM viðskiptavinina, alla eldri reikninga og vörurnar á þeim úr Payday, svo sagan fylgir með frá fyrsta degi og þú sérð strax hvað hver viðskiptavinur er með.
Business Central
Full samþætting við Business Central
Notar fyrirtækið Microsoft Dynamics 365 Business Central? Stjórnandi hjá ykkur samþykkir tenginguna einu sinni í Microsoft, án lykla eða forritunar. Eftir það er reikningur sem þú gefur út í CRM bókaður í Business Central, með réttum VSK-flokkum og tekjulyklum, og viðskiptavinurinn fundinn eða stofnaður þar eftir kennitölu. Reikningurinn sjálfur (PDF) kemur úr Business Central, svo það sem viðskiptavinurinn fær er það sem er í bókhaldinu.
Ógreidd staða er sótt úr Business Central á 15 mínútna fresti og afstemming sýnir hvort CRM og bókhaldið stemma. Kreditreikningar fara sömu leið.
Viðskiptavinir, vörur og eldri bókaðir reikningar eru sóttir úr Business Central með einum smelli. Fleiri félög í sama Business Central? Þú velur úr hvaða félagi, eða fleiri en einu, gögnin eru sótt, og hvert þeirra samstillist áfram við rétt félag.
Svona byrjar þú
Komið í gagnið á einum degi
-
Þú færð CRM kerfið á eigin léni
Til dæmis crm.fyrirtaekid.is, með innskráningu í tveimur skrefum og eigin merki á tilboðum og reikningum.
-
Tengdu Payday eða Business Central og sæktu gögnin
Lyklar úr Payday, eða samþykki stjórnanda í Microsoft fyrir Business Central. Svo sækir þú viðskiptavini, reikninga og vörur þaðan.
-
Eða flyttu inn úr Excel
Viðskiptavinalistinn úr Excel eða CSV. Dálkar eins og Nafn, Kennitala og Netfang parast sjálfkrafa, líka úr skrám úr öðrum kerfum.
-
Bjóddu teyminu inn
Eigandi, sölustjóri, sölumenn og fjármál fá hver sitt hlutverk og sjá það sem þau eiga að sjá.
Fyrir hverja
CRM fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki
Gögn og öryggi
Gögnin eru þín
- Hvert fyrirtæki er aðskilið í gagnagrunninum og sér aðeins sín gögn.
- Rekið af Vefhjálp á netþjóni í Evrópu, með sjálfvirku afriti fyrir hvert fyrirtæki.
- Innskráning í tveimur skrefum og aðgerðaskrá sem sýnir hver gerði hvað og hvenær.
- Viðskiptavini, tilboð, reikninga og verðskrá má flytja út í Excel hvenær sem er.
- Lyklar að Payday eru geymdir dulkóðaðir og aldrei birtir aftur. Business Central tengist með samþykki stjórnanda í Microsoft, og það má afturkalla hvenær sem er.
Algengar spurningar
Spurt og svarað um CRM kerfið
Hvað er CRM kerfi?
CRM (customer relationship management) er kerfi sem heldur utan um viðskiptavini og söluna: hverjir viðskiptavinirnir eru, hvað þeir eru með, hvaða tilboð eru úti, hvað hefur verið rukkað og hvað var síðast rætt. Í stað þess að þetta dreifist á Excel, tölvupóst og bókhaldið er allt á einum stað.
Hvað þýðir full samþætting við Payday?
Reikningar sem þú gefur út í CRM eru stofnaðir og bókaðir í Payday, viðskiptavinir eru fundnir eða stofnaðir þar eftir kennitölu, og greiðslur og ógildingar í Payday berast til baka í CRM. Þú getur líka sótt viðskiptavini, eldri reikninga og vörur úr Payday inn í CRM.
Ég er ekki með Payday. Get ég samt notað CRM kerfið?
Já. CRM getur gefið út reikninga sjálft sem PDF. Viljir þú bókhald, kröfur í netbanka og rafræna reikninga getur þú stofnað aðgang að Payday og tengt hann hvenær sem er. Microsoft Dynamics 365 Business Central er líka stutt.
Hvað verður um reikningana sem eru nú þegar í Payday?
Þú sækir þá inn í CRM með einum smelli. Þeir koma með númeri, línum og stöðu eins og í Payday, og ekkert er sent til baka í Payday. Það er óhætt að sækja aftur; ekkert tvöfaldast.
Virkar CRM kerfið með Business Central?
Já. Reikningar og kreditreikningar úr CRM eru bókaðir í Microsoft Dynamics 365 Business Central, ógreidd staða er sótt þaðan sjálfkrafa, og viðskiptavini, vörur og eldri reikninga má sækja úr Business Central, líka úr fleiri en einu félagi.
Hvað eru Mínar síður?
Svæði á ykkar léni þar sem viðskiptavinir ykkar sjá tilboð, reikninga, stöðu og vörur, samþykkja tilboð og senda fyrirspurnir. Hver einstaklingur skráir sig inn með eigin kennitölu og lykilorði, og þið ráðið hver fær aðgang og hvaða viðskiptavini hann sér.
Geta fyrirspurnir í tölvupósti farið beint í CRM?
Já. Tengdu sameiginlega pósthólfið (Microsoft 365, Google Workspace eða Gmail) og nýjar fyrirspurnir verða að erindum sem þið úthlutið, svarið beint úr CRM og breytið í tækifæri. Svar viðskiptavinarins ratar aftur í sama erindi.
Hvað kostar CRM kerfið?
29.000 kr. á mánuði án VSK fyrir fyrirtækið, óháð fjölda viðskiptavina. Fyrstu 14 dagarnir eru frítt og ekkert gerist sjálfkrafa eftir prufuna; þú velur hvort þú heldur áfram.
Getum við flutt okkur burt seinna?
Já. Viðskiptavini, tengiliði, tækifæri, tilboð, reikninga og verðskrá má flytja út í Excel hvenær sem er.
Prófaðu CRM kerfið frítt í 14 daga
Þinn eigin aðgangur á einni mínútu, án greiðslukorts. Eða fáðu kynningu og við tengjum Payday eða Business Central með þér.
CRM kerfið er þróað og rekið af Vefhjálp á Íslandi.