Hoppa í aðalefni
V Vefhjálp

Vefhýsing

Vefhýsing hjá Vefhjálp þýðir að vefurinn þinn er í lofti, hraður og uppfærður — án þess að þú þurfir að hugsa um það. Vefhjálp sér um hýsinguna, uppfærslurnar, afritin og öryggið, og þú talar við einn aðila þegar eitthvað kemur upp. Ekki símaver í öðru landi.

Innifalið

Vefhýsing og umsjón í einum pakka

01

WordPress-hýsing

Hraðvirkir þjónar sem eru stilltir sérstaklega fyrir WordPress — skyndiminni, nútíma PHP og HTTP/2.

02

Uppfærslur

Kjarni, viðbætur og þemu haldið uppfærðu og prófað eftir á, svo uppfærsla brjóti ekki vefinn þegjandi.

03

Sjálfvirk afrit

Dagleg afrit af skrám og gagnagrunni, geymd utan þjónsins. Hægt að endurheimta fyrri útgáfu ef eitthvað fer úrskeiðis.

04

Öryggi og SSL

SSL-skírteini innifalið og endurnýjað sjálfkrafa, eldveggur fyrir framan vefinn og vöktun á innskráningartilraunum.

05

Vöktun allan sólarhringinn

Fylgst er með því hvort vefurinn svarar. Ef hann dettur út fáum við tilkynningu strax — ekki þú frá viðskiptavini.

06

Aðstoð á íslensku

Sendu tölvupóst og þú færð svar frá manneskju sem þekkir vefinn þinn, ekki almennt svar úr þekkingargrunni.

Verð

Verð á vefhýsingu — engin binding

Grunnur

1.990 kr. á mánuði

1 vefsíða, 10 GB pláss, 5 netföng, frítt SSL, dagleg afrit og WordPress með einum smelli.

Fyrirtæki · vinsælast

3.990 kr. á mánuði

Allt að 5 vefsíður, 30 GB pláss, 25 netföng, frítt SSL, dagleg afrit og prufuútgáfa (staging).

Pro

6.990 kr. á mánuði

Allt að 15 vefsíður, 80 GB pláss, 100 netföng, ótakmarkaðir gagnagrunnar, dagleg afrit og forgangsþjónusta.

Öll verð eru án VSK. Þú velur pakka og pantar sjálf(ur) á vefhysing.vefhjalp.is.

Þjónustugátt Vefhjálpar

Þín hýsing á einum stað: vefhysing.vefhjalp.is

Allir sem eru í vefhýsingu hjá Vefhjálp fá aðgang að þjónustugátt Vefhjálpar á vefhysing.vefhjalp.is — smelltu á „Mínar síður“ efst á vefhjalp.is. Þar skráir þú þig inn og sérð þjónustuna þína: vefina, stöðu þeirra og aðgang að hýsingarstjórn.

Gáttin er rekin af Vefhjálp á sama hátt og fjaradstod.vefhjalp.is — ekki af þriðja aðila. Meira bætist við jafnt og þétt, svo þú getir gert sem mest sjálf(ur) án þess að bíða eftir svari.

Flutningur

Við flytjum vefinn fyrir þig

Skref 1

Við skoðum vefinn

Þú sendir okkur aðgang að núverandi hýsingu. Við förum yfir stærð, viðbætur og hvað þarf að hafa í huga.

Skref 2

Afrit og prófun

Vefurinn er settur upp hjá okkur og prófaður áður en nokkuð breytist hjá gestum. Gamla hýsingin er ósnert á meðan.

Skref 3

Skipt um og klárað

Við breytum DNS á rólegum tíma, setjum upp SSL og fylgjumst með fyrstu dagana. Enginn niðurtími í venjulegum tilfellum.

Fyrir hverja

Hentar þeim sem vilja ekki reka vef sjálfir

  • Lítil og meðalstór fyrirtæki
  • Félagasamtök
  • Sjálfstætt starfandi
  • Vefverslanir
  • Hönnuðir sem vilja losna við rekstur
  • Vefir sem enginn hefur sinnt lengi

Gögn og rekstur

Þú átt vefinn þinn — alltaf

  • Gögn hýst í Evrópu og meðhöndluð í samræmi við persónuverndarlög.
  • Enginn binditími — þú getur hætt með mánaðar fyrirvara.
  • Þú færð fullt afrit af vefnum hvenær sem er, án aukagjalds.
  • Við læsum þig ekki inni í sérlausn — þetta er venjulegur WordPress sem hægt er að flytja hvert sem er.
  • Aðgangur að hýsingarstjórn í þjónustugáttinni ef þú vilt hann, annars sjáum við um allt.

Algengar spurningar

Það sem fólk spyr að

Hvað kostar vefhýsing?

Vefhýsing hjá Vefhjálp kostar frá 1.990 kr. á mánuði án VSK (Grunnur), 3.990 kr. (Fyrirtæki) eða 6.990 kr. (Pro). Engin binding og ekkert stofngjald. Þú velur pakka og pantar á vefhysing.vefhjalp.is.

Hvað á að bera saman þegar vefhýsingar eru valdar?

Verðið segir lítið eitt og sér. Skoðaðu hvort afrit eru tekin daglega og geymd utan þjónsins, hvort uppfærslur eru innifaldar, hvar gögnin eru hýst og hvort þú færð svar frá manneskju á íslensku. Hjá Vefhjálp er allt þetta innifalið í vefhýsingunni.

Hvar eru vefirnir hýstir?

Vefirnir eru hýstir á netþjónum innan Evrópu, og öll þjónusta og aðstoð er á íslensku. Þú getur fylgst með þjónustunni og hýsingarstjórn í þjónustugáttinni á vefhysing.vefhjalp.is.

Kostar flutningurinn eitthvað?

Nei, við flytjum vefinn þér að kostnaðarlausu þegar þú byrjar í áskrift. Ef vefurinn er sérstaklega umfangsmikill förum við yfir það áður en byrjað er.

Verður vefurinn niðri á meðan flutt er?

Nei. Vefurinn er settur upp og prófaður hjá okkur áður en DNS er breytt, og gamla hýsingin er látin lifa á meðan breytingin gengur í gegn.

Hvað ef vefurinn hrynur eftir uppfærslu?

Við tökum afrit fyrir uppfærslu og prófum vefinn eftir hana. Ef eitthvað brotnar er hægt að fara til baka í fyrri útgáfu strax.

Fylgir lén með?

Lénið er skráð á þig og þú átt það áfram. Við aðstoðum við að beina því á hýsinguna og getum séð um endurnýjun ef þú vilt.

Get ég áfram breytt vefnum sjálfur?

Já, þú færð þinn eigin aðgang að WordPress og getur unnið í vefnum eins og áður. Við sjáum um það sem er undir.

Tengd þjónusta

Það sem fylgir oft með

Pantaðu vefhýsingu á netinu

Veldu pakka á vefhysing.vefhjalp.is og gakktu frá pöntuninni sjálf(ur). Þar sérðu líka vefina þína og stöðu þeirra eftir að þú ert komin(n) í hýsingu.