Hoppa í aðalefni
V Vefhjálp
← Allar vörur
Heilbrigðis Lifandi

Fótaskrá

Fjölnotenda sjúkraskrárkerfi fyrir fótaaðgerðafræðinga, með FHIR R4 API og samræmi við reglugerð 550/2015.

Fótaskrá er íslenskt sjúkraskrárkerfi fyrir fótaaðgerðafræðinga. Það heldur utan um skjólstæðinga, komur, nótur og sáramyndir á einum stað — með aðgangsskráningu og öryggiskröfum sem reglugerð 550/2015 gerir til sjúkraskráa.

Vandamálið

Word-skjal er ekki sjúkraskrá

Margar stofur skrá enn í Word, Excel eða stílabók, og myndirnar liggja í símanum. Það gengur þangað til einhver spyr hver hafi skoðað hvaða skrá, hvenær nótan var skrifuð eða hvar myndin af sárinu er. Reglugerð um sjúkraskrár gerir kröfur um aðgangsstýringu, rekjanleika og varðveislu sem venjuleg skrifstofuforrit uppfylla ekki.

Eiginleikar

Allt utan um skjólstæðinginn

Skjólstæðingar og komur

Hver skjólstæðingur með sína sögu: komur, nótur, myndir og skjöl í tímaröð sem þú getur flett í gegnum.

Sáramyndir úr símanum

Taktu mynd beint í vafranum og hún vistast á réttu komuna. Smelltu til að stækka, súmmaðu inn á sárið og sæktu myndina þegar þarf.

Útskriftarnótur

Skráðu samantekt við lok meðferðar í föstu formi, tengda skjólstæðingnum og komunum á bak við hana.

Aðgangsskráning

Kerfið skráir hver opnaði hvaða skrá og hvenær. Þú getur alltaf sýnt fram á hverjir hafa skoðað gögnin.

Viðkvæmnimerkingar

Merktu einstakar færslur sem viðkvæmar og takmarkaðu hverjir innan stofunnar komast í þær.

FHIR R4 tengiviðmót

Staðlað API svo hægt sé að tengja Fótaskrá við önnur heilbrigðiskerfi í stað þess að afrita gögn handvirkt.

Það sem skiptir mestu

Myndin fer beint á réttan stað

Sáramynd sem er tekin á síma og geymd í myndasafninu er hvorki hluti af sjúkraskránni né varin. Í Fótaskrá opnar þú myndavélina inni í kerfinu, tekur myndina og hún vistast strax á réttu komuna hjá réttum skjólstæðingi — minnkuð, staðsetningarupplýsingum eytt og skráð í aðgangsskrána eins og allt annað.

Þetta er munurinn á því að eiga myndir af sárum og að eiga sjúkraskrá.

Svona byrjar þú

Stofan komin í gagnið

  1. Stofnaðu stofuna

    Við setjum upp stofuna þína og fyrsta aðganginn. Þú þarft ekkert að setja upp á tölvuna — kerfið keyrir í vafranum.

  2. Bjóddu starfsfólki inn

    Hver starfsmaður fær sitt boð, sinn aðgang og sitt hlutverk. Tvíþátta auðkenning er hluti af innskráningunni.

  3. Skráðu skjólstæðingana

    Byrjaðu á þeim sem eru í meðferð núna og bættu við eftir því sem fólk kemur inn. Ekkert stórt innflutningsverkefni fyrst.

  4. Skráðu komur jafnóðum

    Nóta, mynd og næsti tími skráð á staðnum. Eftir fyrstu vikuna er sagan farin að byggjast upp sjálf.

Fyrir hverja

Hentar sérstaklega vel

  • Fótaaðgerðastofur
  • Einyrkjar með eigin stofu
  • Stofur með fleiri en einn fótaaðgerðafræðing
  • Þá sem skrá enn í Word eða á pappír
  • Stofur sem sinna sykursjúkum og sárameðferð
  • Þá sem þurfa að standa skil á aðgangi að gögnum

Gögn og öryggi

Gögnin eru þín og þau eru varin

  • Sjálfstætt kerfi á eigin þjóni í Evrópu — ekki deilt með öðrum þjónustum.
  • Tvíþátta auðkenning (TOTP) við innskráningu.
  • Aðgangsskráning á allar uppflettingar, með yfirliti fyrir stjórnanda stofunnar.
  • Trúnaðaryfirlýsingar starfsfólks skráðar inni í kerfinu.
  • Sjálfvirk afrit tekin daglega og geymd í allt að sex mánuði.
  • Öll umferð dulkóðuð og lykilorð geymd sem hakkar.

Algengar spurningar

Spurt og svarað

Hvað er Fótaskrá?

Fótaskrá er vefkerfi til að halda sjúkraskrá á fótaaðgerðastofu. Þú skráir skjólstæðinga, komur, nótur og sáramyndir í kerfinu í stað þess að nota Word-skjöl, stílabók eða myndasafnið í símanum, og kerfið heldur utan um aðgangsstýringu og rekjanleika á bak við.

Uppfyllir kerfið kröfur um sjúkraskrár?

Fótaskrá er byggð utan um kröfur reglugerðar 550/2015 um sjúkraskrár: tvíþátta auðkenning, aðgangsstýring eftir hlutverkum, skráning á öllum uppflettingum, viðkvæmnimerkingar, útskriftarnótur og trúnaðaryfirlýsingar starfsfólks.

Hvar eru gögnin geymd?

Á sérstökum þjóni í Evrópu sem er ekki deilt með öðrum kerfum. Afrit eru tekin daglega og geymd í allt að sex mánuði, og öll umferð er dulkóðuð.

Get ég tekið myndir af sárum beint í kerfinu?

Já. Þú opnar myndavélina inni í Fótaskrá, tekur myndina og hún vistast strax á réttu komuna. Myndin er minnkuð sjálfkrafa, staðsetningarupplýsingum úr símanum er eytt og hægt er að stækka, súmma og sækja hana síðar.

Vinna fleiri en einn á sömu stofu?

Já. Hver starfsmaður fær eigin aðgang og hlutverk, og stjórnandi stofunnar sér yfirlit yfir hverjir hafa skoðað hvaða skrár.

Þarf ég að setja upp forrit?

Nei. Fótaskrá keyrir í vafranum, bæði í tölvu og síma. Það er engin uppsetning og engar uppfærslur sem þú þarft að hugsa um.

Er hægt að tengja Fótaskrá við önnur kerfi?

Já, kerfið er með FHIR R4 tengiviðmót, sem er alþjóðlegur staðall fyrir samskipti heilbrigðiskerfa. Hafðu samband ef þú vilt skoða tengingu við kerfi sem þú notar nú þegar.

Fáðu kynningu á Fótaskrá

Við förum yfir kerfið með þér og setjum upp stofuna þína.

Fótaskrá er þróuð og rekin af Vefhjálp ehf. á Íslandi.