Vefhjálp sinnir tölvumálum fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki á Íslandi — fjaraðstoð þegar eitthvað stoppar, uppsetning á búnaði fyrir nýtt starfsfólk og umsjón með því sem þarf að vera í lagi í bakgrunni. Þú færð einn tengilið sem þekkir uppsetninguna hjá þér.
Vandamálið
Fyrirtækið er of lítið fyrir IT-deild og of stórt til að sleppa því
Í flestum fyrirtækjum undir fimmtíu manns er tölvumálunum sinnt af þeim sem er minnst hræddur við þau. Það gengur þangað til hann er í fríi, tölvupósturinn hættir að virka og enginn veit hvar lykilorðin eru. Vandinn er sjaldan tæknilega flókinn — hann er sá að enginn ber ábyrgðina.
Þjónusta
Það sem við sjáum um
Fjaraðstoð
Við tengjumst tölvunni þinni og leysum málið á staðnum. Þú sækir forritið af okkar eigin síðu og samþykkir tenginguna í hvert sinn.
Uppsetning á búnaði
Nýjar tölvur og símar settir upp fyrir starfsfólk: notandi, tölvupóstur, forrit og aðgangur að því sem viðkomandi þarf.
Tölvupóstur og Microsoft 365
Uppsetning, notendaumsjón, deildarpóstföll og aðstoð þegar póstur hættir að berast eða lendir í ruslpósti.
Netbúnaður
Beinar, netskiptar og þráðlaust net sett upp og stillt, og fylgst með því að það haldist í lofti.
Afrit og öryggi
Að gögnin séu afrituð, að afritin virki og að hægt sé að endurheimta þau. Uppfærslur og aðgangsstýring í leiðinni.
Nýliðar og starfslok
Föst verklagsregla fyrir það þegar starfsmaður byrjar og þegar hann hættir, svo enginn aðgangur gleymist opinn.
Það sem skiptir mestu
Fjaraðstoðin fer ekki í gegnum þriðja aðila
Flest fyrirtæki nota fjaraðstoðarforrit þar sem tengingin fer um erlenda þjónustu sem þú hefur ekkert um að segja. Vefhjálp rekur sinn eigin fjaraðstoðarþjón í Evrópu. Þú sækir forstilltan klíent af fjaradstod.vefhjalp.is, hann tengist beint við okkar þjón og þú samþykkir hverja tengingu.
Þetta skiptir máli þegar það sem sést á skjánum eru gögn viðskiptavina þinna.
Svona virkar þetta
Frá fyrsta símtali
-
Við förum yfir stöðuna
Hvaða búnað þið eruð með, hvað er í notkun og hvað hefur verið að angra ykkur. Yfirleitt nægir eitt símtal.
-
Við tökum til það sem liggur á
Það sem er bilað eða óöruggt fer fremst. Oft eru það afritin eða aðgangar sem hafa staðið opnir of lengi.
-
Þið fáið fasta leið til að ná í okkur
Sími eða tölvupóstur, og fjaraðstoð þegar þarf að sjá skjáinn. Ekkert miðakerfi og engin biðröð.
Fyrir hverja
Hentar sérstaklega vel
Tengd þjónusta
Það sem fylgir oft með
Algengar spurningar
Spurt og svarað
Hvað er tölvuaðstoð fyrir fyrirtæki?
Það er utanaðkomandi aðili sem sinnir þeim tölvumálum sem IT-deild myndi annars sjá um: uppsetningu á búnaði, notendaaðgangi, tölvupósti, afritum, öryggi og aðstoð þegar eitthvað hættir að virka. Fyrirtækið kaupir þjónustuna í stað þess að ráða starfsmann í hana.
Komið þið á staðinn eða er þetta allt í fjartengingu?
Langflest mál leysast í fjaraðstoð og það er fljótlegasta leiðin fyrir báða. Þegar þarf að handleika búnað — nýjar tölvur, netbúnað, snúrur — þá er mætt á staðinn.
Þurfum við að vera með fastan samning?
Nei. Sum fyrirtæki eru með fast fyrirkomulag, önnur hringja þegar eitthvað kemur upp. Hafðu samband og við finnum út hvort hentar ykkur.
Hvað kostar þetta?
Það fer eftir stærð fyrirtækisins og hversu mikið þarf að sinna. Farðu yfir stöðuna með okkur í símtali og þú færð verðhugmynd sem stenst.
Getið þið tekið við af þeim sem sinnir þessu í dag?
Já. Það sem þarf er aðgangur að því sem er í notkun og yfirferð á uppsetningunni. Við kortleggjum hana og látum vita ef eitthvað er óskráð eða opið sem á ekki að vera það.
Fáðu yfirferð á tölvumálunum
Eitt símtal og við förum yfir stöðuna hjá ykkur.
Vefhjálp ehf. — VSK-númer 161944. Hugbúnaður, vefir og tölvuþjónusta á Íslandi.