Hoppa í aðalefni
V Vefhjálp
← Allar vörur
Rekstur Lifandi

VaktaPlan

Vaktaskipulag og vaktaplön fyrir teymi, með árekstragreiningu, vaktaskiptum og veikindaskráningu.

VaktaPlan heldur utan um vaktaplönin fyrir teymið þitt — býr til planið, finnur árekstrana áður en þeir verða að vandamáli og lætur starfsfólkið sjá vaktirnar sínar í símanum. Engin Excel-skjöl á flakki og engir SMS-þræðir um hver tekur laugardaginn.

Eiginleikar

Allt vaktaskipulagið á einum stað

01

Vaktaplön

Settu upp vikuna eða mánuðinn, afritaðu fyrri plön og birtu þegar allt er tilbúið. Breytingar skila sér strax til allra.

02

Árekstragreining

Kerfið lætur vita um leið og eitthvað stangast á — tvöföld bókun, of stuttur hvíldartími eða vakt sem enginn er skráður á.

03

Vaktaskipti

Starfsmaður óskar eftir skiptum, samstarfsmaður tekur við og stjórnandi samþykkir. Allt skráð, ekkert á reiki.

04

Veikindaskráning

Skráðu veikindi með einum smelli og sjáðu strax hvaða vaktir losna og hverjir eru lausir til að hlaupa í skarðið.

05

Yfirsýn yfir teymið

Hver er á vakt núna, hver er í fríi og hver er kominn með fleiri helgar en aðrir. Jafnara plan án þess að telja í höndunum.

06

Virkar í símanum

Vefkerfi sem er byggt fyrir lítinn skjá jafnt sem stóran. Ekkert app að setja upp — bara hlekkur og innskráning.

Svona virkar það

Komið í gang á einni kaffipásu

Skref 1

Settu inn teymið

Bættu við starfsfólki og skilgreindu vaktategundir og opnunartíma. Þú getur flutt inn lista ef þú ert með hann til.

Skref 2

Búðu til planið

Raðaðu vöktum inn í vikuna. Kerfið fylgist með á meðan og bendir á árekstra og göt í planinu jafnóðum.

Skref 3

Birtu og haltu utan um

Starfsfólkið sér planið sitt, óskar eftir skiptum og skráir veikindi. Þú samþykkir og planið helst alltaf réttt.

Fyrir hverja

Hentar öllum teymum sem vinna á vöktum

  • Veitingastaðir og kaffihús
  • Verslanir
  • Umönnun og heilbrigðisþjónusta
  • Hótel og gisting
  • Framleiðsla og verkstæði
  • Íþrótta- og sundmiðstöðvar
  • Öryggis- og þjónustuteymi

Gögn og öryggi

Íslenskt kerfi, gögnin á sínum stað

  • Viðmótið er allt á íslensku — engar hálfþýddar valmyndir.
  • Gögn eru hýst í Evrópu og meðhöndluð í samræmi við persónuverndarlög.
  • Sjálfvirk afrit tekin daglega.
  • Aðgangsstýring eftir hlutverkum — stjórnendur sjá allt, starfsfólk sér sitt.
  • Sérsníðum uppsetningu fyrir stærri teymi ef þess þarf.

Algengar spurningar

Það sem fólk spyr að

Þarf starfsfólkið að setja upp app?

Nei. VaktaPlan er vefkerfi sem opnast í hvaða vafra sem er. Hægt er að festa það á heimaskjáinn í símanum og þá hegðar það sér eins og app.

Get ég flutt inn planið sem ég er með í dag?

Já, við aðstoðum við að flytja inn starfsmannalista og uppsetningu á vöktum þegar þú byrjar, hvort sem það kemur úr Excel eða öðru kerfi.

Hvað gerist ef einhver veikist með stuttum fyrirvara?

Vaktin er skráð sem laus og kerfið sýnir hverjir eru ekki þegar á vakt á sama tíma, svo þú getur fyllt í hana strax.

Hvað kostar þetta?

Verðið fer eftir stærð teymisins. Hafðu samband og við förum yfir hvað hentar þínum rekstri.

Prófaðu VaktaPlan

Sendu okkur línu og við setjum upp aðgang fyrir teymið þitt og förum yfir uppsetninguna með þér.